Við vonum að þú njótir leitarinnar að kirkjugörðum. Hafðu í huga að þessi eiginleiki er á tilraunastigi og býður takmarkaða aðstoð.
Leit að kirkjugörðum
FamilySearch er með sívaxandi gagnagrunn yfir kirkjugarða um allan heim sem eru tengdir við stærsta ættartré heims á netinu. Leitaðu eftir staðsetningu, heiti kirkjugarðs eða nafni ættingja til að finna hvíldarstað látinna fjölskyldumeðlima eða annars einstaklings sem þú hefur áhuga á.
Heimsóknir á kirkjugarða
Kirkjugarðar eru staðir lotningar og minningar, staðir til að bera virðingu fyrir þeim sem látnir eru og viðurkenna þau áhrif sem þeir höfðu á líf okkar. Greftrunarstaðir, brennslustaðir og önnur minnismerki veita tækifæri til að læra meira um áa okkar og sögur þeirra.
Hvernig nota skal þessa vefsíðu
Leitaðu eða skoðaðu þig um til að finna þá kirkjugarða sem þú hefur áhuga á. Á hverri kirkjugarðssíðu getur þú leitað að áum þínum eða öðrum einstaklingum sem kunna að vera grafnir eða heiðraðir þar. Þú munt einnig finna almennar upplýsingar um kirkjugarðinn, svo sem opnunartíma og heimilisfang, ásamt tenglum á heimasíðu kirkjugarðsins til frekari upplýsinga um þjónustu sem í boði er.